Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Ráslisti fyrir fimmganginn í Meistaradeildinni

  • 27. febrúar 2024
  • Fréttir

Sara Sigurbjörnsdóttir vann fimmganginn í fyrra á Flóka frá Oddhóli Mynd: Eyja.net

Á fimmtudaginn verður keppt í fimmgangi í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum.

Keppnin fer fram í HorseDay höllinni en frítt er inn í höllina í boði Toyota Selfossi.

Keppnin hefst kl. 19:00 og fyrstur í braut er Þorgeir Ólafsson á Aþenu frá Þjóðólfshaga en þetta er frumraun þeirra á keppnisbrautinni. Þorgeir og Aþena keppa fyrir lið Þjóðólfshaga/Sumarliðabæjar.

Það gefur auga leið að sigurvegararnir frá því í fyrra, Sara Sigurbjörnsdóttir og Flóki frá Oddhóli, eru ekki á ráslistanum svo ljóst er að krýndur verður nýr sigurvegari á fimmtudaginn.

Á listanum eru mörg ný nöfn sem ekki hafa sést í fimmgangi áður en einnig eru þar gamalreyndar kempur. Eyrún Ýr Pálsdóttir og Hrannar frá Flugumýri, aldursforsetinn á listanum, mæta til leiks. Þau hafa verið gríðarsterk, Landsmótssigurvegarar, Íslandsmeistarar í fimmgangi og urðu í 2. sæti fimmgangi í Meistaradeildinni fyrir fjórum árum. Gaman er að sjá að tveir synir hans eru líka skráðir til leiks en Viðar Ingólfsson mætir með Eld frá MiðFossum og Flosi Ólafsson mætir með Steinar frá Stíghúsi og keppa þeir báðir fyrir lið Hrímnis/Hest.is

Konráð Valur Sveinsson mætir með hæst dæmda stóðhestinn í fyrra, Seið frá Hólum, en þeir koma inn í uppboðssæti. Konráð er í liðið Top Reiter og mun því keppa til stiga í einstaklingskeppni en ekki í liðakeppninni.

Staðan í liða- og einstaklingskeppninni fyrir fimmganginn er þannig að efstur í einstaklingskeppninni er Jakob Svavar Sigurðsson með 22 stig en hann mætir með Gleði frá Hólaborg en þetta er frumraun þeirra á keppnisbrautinni. Önnur með 20 stig er Glódís Rún Sigurðardóttir og mætir hún með Snilling frá Íbishóli en þau voru í öðru sæti í þessari grein í deildinni árið 2022. Þriðja er Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir með 17 stig og er hún skráð á Kömmu frá Margrétarhofi en þær spreyttu sig örlítið á keppnisbrautinni í fyrra og unnu fimmgang F2 á Suðurlandsmótinu í fyrra.

Hestvit/Árbakki leiðir liðakeppnina með 97 stig. Á eftir þeim er Hjarðartún með einu stigi minna eða 96 stig og þriðja er lið Ganghesta/Margrétarhofs með 86 stig.

Hér fyrir neðan er ráslistinn fyrir fimmganginn.

Nr. Knapi Hestur Faðir Móðir Lið
1 Þorgeir Ólafsson Aþena frá Þjóðólfshaga 1 Skýr frá Skálakoti Arna frá Skipaskaga Þjóðólfshagi/Sumarliðabær
2 Hans Þór Hilmarsson Ölur frá Reykjavöllum Narri frá Vestri-Leirárgörðum Hrísla frá Sauðárkróki Hjarðartún
3 Viðar Ingólfsson Eldur frá Mið-Fossum Hrannar frá Flugumýri II Snekkja frá Bakka Hrímnir/Hest.is
4 Páll Bragi Hólmarsson Snjall frá Austurkoti Ölnir frá Akranesi Snæsól frá Austurkoti Austurkot/Pula
5 Glódís Rún Sigurðardóttir Snillingur frá Íbishóli Vafi frá Ysta-Mó Ósk frá Íbishóli Hestvit/Árbakki
6 Ragnhildur Haraldsdóttir Ísdís frá Árdal Sproti frá Innri-Skeljabrekku Ísbrún frá Syðstu-Fossum Ganghestar/Margrétarhof
7 Árni Björn Pálsson Ísbjörg frá Blesastöðum 1A Spuni frá Vesturkoti Blábjörg frá Torfastöðum Top Reiter
8 Ásmundur Ernir Snorrason Askur frá Holtsmúla 1 Eldur frá Torfunesi Askja frá Þúfu í Landeyjum Hrímnir/Hest.is
9 Elvar Þormarsson Djáknar frá Selfossi Arion frá Eystra-Fróðholti Diljá frá Hveragerði Hjarðartún
10 Pierre Sandsten Hoyos Heba frá Íbishóli Snillingur frá Íbishóli Hervör frá Víðiholti Hestvit/Árbakki
11 Sigurður Vignir Matthíasson Hlekkur frá Saurbæ Þeyr frá Prestsbæ Njóla frá Miðsitju Ganghestar/Margrétarhof
12 Bjarni Jónasson Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli Mjölnir frá Hlemmiskeiði 3 Orka frá Hvolsvelli Þjóðólfshagi/Sumarliðabær
13 Eyrún Ýr Pálsdóttir Hrannar frá Flugumýri II Kraftur frá Bringu Hending frá Flugumýri Top Reiter
14 Ólafur Andri Guðmundsson Móeiður frá Feti Stáli frá Kjarri Hvatning frá Feti Austurkot/Pula
15 Flosi Ólafsson Steinar frá Stíghúsi Hrannar frá Flugumýri II Álöf frá Ketilsstöðum Hrímnir/Hest.is
16 Jakob Svavar Sigurðsson Gleði frá Hólaborg Forseti frá Vorsabæ II Hamingja frá Hæli Hjarðartún
17 Sigurður Sigurðarson Mánadís frá Litla-Dal Rammi frá Búlandi Aldís frá Litla-Dal Þjóðólfshagi/Sumarliðabær
18 Teitur Árnason Nóta frá Flugumýri II Blysfari frá Fremra-Hálsi Smella frá Flugumýri Top Reiter
19 Gústaf Ásgeir Hinriksson Hringjari frá Efri-Fitjum Hringur frá Gunnarsstöðum I Nepja frá Efri-Fitjum Hestvit/Árbakki
20 Jóhann Kristinn Ragnarsson Spyrnir frá Bárubæ Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði Maístjarna frá Stóra-Hofi Austurkot/Pula
21 Konráð Valur Sveinsson Seiður frá Hólum Trymbill frá Stóra-Ási Ösp frá Hólum Top Reiter
22 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Kamma frá Margrétarhofi Spuni frá Vesturkoti Harpa frá Gunnarsstöðum I Ganghestar/Margrétarhof

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link