Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Ráslisti fyrir gæðingafimina

  • 17. mars 2022
  • Fréttir
gaedingafimi
Meistaradeild Líflands heldur áfram á morgun þegar keppt verður í gæðingafimi

Á morgun, föstudaginn, 18.mars verður keppt í Gæðingafimi í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum á Ingólfshvoli. Frítt er inn í höllina fyrir áhorfendur en húsið opnar kl.17:00 og boðið verður upp á sunnlenska kjötsúpu og drykki í öllum stærðum og gerðum.

Gæðingafimi er gríðarlega krefjandi keppnisgrein þar sem reynir á ganghæfileika og þjálfunarstig hests og knapar þurfa að koma vel undirbúnir til leiks. Keppendur fá allt að 5 min til að sýna það besta sem hesturinn hefur upp á að bjóða og nú í ár verður í fyrsta skipti keppt eftir reglum LH.

Hart var barist í fyrra í úrslitum. Jakob Svavar Sigurðsson sigraði með frábærlega vel útfærða og glæsilega sýningu á hestinum Hálfmána frá Steinsholti og 8,60 í einkunn. Nú í ár er mikið um nýja hesta og knapa sem spennandi verður að fylgjast með hvernig til tekst en ráslistinn er hægt að sjá hér fyrir neðan. Þrír villikettir eru skráðir til leiks og Vilfríður Sæþórsdóttir keppir í uppboðssætinu á Viljari frá Múla.

Útsending með Telma Tómasson hefst nákvæmlega kl 18:30 á Alendis.is og með henni verður Ólafur Andri Guðmundsson. Henning Drath verður á sínum stað með umfjöllun á þýsku. Síðast en ekki síst verða Hulda G. Geirsdóttir og Hekla Katharína Kristinsdóttir að sjálfsögðu á RÚV2 kl 19:00.

Ráslisti – Gæðingafimi

1 Hanna Rún Ingibergsdóttir Grímur frá Skógarási Top Reiter
2 Páll Bragi Hólmarsson Vísir frá Kagaðarhóli Skeiðvellir / Storm rider
3 Vilfríður Sæþórsdóttir Viljar frá Múla UPPBOÐSSÆTI
4 Sigurður Sigurðarson Leikur frá Vesturkoti Þjóðólfshagi / Sumarliðabær
5 VILLIKÖTTUR Hjarðartún
6 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum Ganghestar / Margrétarhof
7 Hinrik Bragason Kveikur frá Hrísdal Hestvit / Árbakki
8 Flosi Ólafsson Forkur frá Breiðabólsstað Hrímnir / Hest.is
9 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Fengur frá Auðsholtshjáleigu Auðholtshjáleiga Horse Export
10 VILLIKÖTTUR Skeiðvellir / Storm rider
11 Helga Una Björnsdóttir Hnokki frá Eylandi Hjarðartún
12 Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ Ganghestar / Margrétarhof
13 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði Auðholtshjáleiga Horse Export
14 VILLIKÖTTUR Þjóðólfshagi / Sumarliðabær
15 Árni Björn Pálsson Katla frá Hemlu II Top Reiter
16 Pierre Sandsten Hoyos Aðgát frá Víðivöllum fremri Hestvit / Árbakki
17 Arnar Bjarki Sigurðarson Stássa frá Íbishóli Hrímnir / Hest.is
18 Jakob Svavar Sigurðsson Tumi frá Jarðbrú Hjarðartún
19 Teitur Árnason Taktur frá Vakurstöðum Top Reiter
20 Glódís Rún Sigurðardóttir Snillingur frá Íbishóli Ganghestar / Margrétarhof
21 Mette Mannseth Skálmöld frá Þúfum Þjóðólfshagi / Sumarliðabær
22 Sara Sigurbjörnsdóttir Flóki frá Oddhóli Auðholtshjáleiga Horse Export
23 Hulda Gústafsdóttir Blesa frá Húnsstöðum Hestvit / Árbakki
24 Sigursteinn Sumarliðason Aldís frá Árheimum Skeiðvellir / Storm rider
25 Viðar Ingólfsson Eldur frá Mið-Fossum Hrímnir / Hest.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link