Ráslisti í Slaktaumatölti T2
|
Í gærkvöldi var dreginn út ráslisti fyrir slaktaumatöltið í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum – sem fer fram á Ingólfshvoli, þann 11. febrúar nk. Drátturinn fór fram í beinu streymi á facebook síðu Alendis TV og aftur var það formaður Meistaradeildarinnar, Sigurbjörn Eiríksson ásamt Eddu Hrund Hinriksdóttir sem sáu um dráttinn. Ljóst er að hörku spennandi keppni er framundan enda margir af bestu hestum landsins skráðir til leiks. Keppnin verður sýnd beint á RÚV2 fyrir landsmenn en einnig verður henni streymt á Alendis Tv. Sjá ráslista hér að neðan. |
|
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH