Ráslisti morgundagsins
Á morgun föstudag fer fram lokamót Meistaradeildar í hestaíþróttum en þá verður keppt í fimmgangi. Nú hafa allir keppendur skilað inn upplýsingum um þau hross er þeir keppa á og mega áhorfendur eiga von á veislu á morgun.
Keppnin hefst klukkan 19:00 en húsið sjálft opnar klukkan 17:00. Kveikt verður upp í grillinu rétt fyrir fimm og geta áhorfendur brunað beint í Ölfushöllina eftir vinnu og fengið sér gómsætt lambakjöt eða kjúkling af grillinu fyrir aðeins 1.500 krónur. Fyrir þá sem vilja verður einnig tilboð á einum köldum eða réttara sagt tveir fyrir einn á 500 krónur á milli 17 og 19. Eins og í vetur verður einnig boðið upp á pizzur.
Trúbador verður á staðnum þegar móti lýkur og heldur hann uppi stemmingu frá kl. 23 – 02:00.
Meistaradeildin verður einnig með happdrætti og kostar miðinn aðeins 1.000 krónur og eru vinningarnir ekki af lakari endanum en það eru folatollar undir Konsert frá Korpu, Leikni frá Vakurstöðum, Leonard frá Vakurstöðum, Aronssonur sammæðra Leikni, Mátt frá Leirubakka, Storm frá Leirulæk og Tón frá Melkoti.
Forsala aðgöngumiða fyrir mótið er í fullum gangi í verslunum Top Reiter, Líflands og Baldvini og Þorvaldi á Selfossi og er aðgangseyrir 1.500 krónur. Það eru um að gera að tryggja sér miða í forsölu.
Hart verður barist í stigakeppninni bæði einstaklinga- og liðakeppninni. En fjórir knapar eiga möguleika á sigri í deildinni og má gera ráð fyrir að þeir berjist fram á síðustu stundu.
Hér að neðan eru ráslistar morgundagsins:
Nr Knapar Lið Hestur
1 Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Þulur frá Hólum
2 Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót Gjafar frá Hvoli
3 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Hreggviður frá
Auðsholtshjáleigu
4 Sigurður Sigurðarson Lýsi Svalur frá Blönduhlíð
5 Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót Gammur frá Þúfu
6 Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Seifur frá Prestsbakka
7 John Kristinn Sigurjónsson Hrímnir Konsert frá Korpu
8 Lena Zielinski Auðsholtshjáleiga Patrik frá Reykjavík
9 Eyjólfur Þorsteinsson Lýsi Kraftur frá Efri-Þverá
10 Ólafur Ásgeirsson Spónn.is Heimur frá Votmúla
11 Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning Völur frá Árbæ
12 Sigursteinn Sumarliðason Spónn.is Geisli frá Svanavatni
13 Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Norður-Götur Tryggur frá Bakkakoti
14 Artemisia Bertus Hrímnir Sólbjartur frá Flekkudal
15 Sigurður Vignir Matthíasson Ganghestar / Málning Máttur frá Leirubakka
16 Elvar Þormarsson Spónn.is Skuggi frá Strandarhjáleigu
17 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Stakkur frá Halldórsstöðum
18 Viðar Ingólfsson Hrímnir Már frá Feti
19 Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Alur frá Lundum
20 Valdimar Bergstað Ganghestar / Málning Týr frá Litla-Dal
21 Haukur Baldvinsson Auðsholtshjáleiga Falur frá Þingeyrum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH