Rauðhetta efst 6 vetra hryssa-

  • 2. ágúst 2011
  • Fréttir
Rauðhetta efst 6 vetra hryssa-

Rauðhetta frá Kommu fór vel hjá Erlingi Erlingssyni enda hækkaði hún hæfileikaeinkunn sína síðan á Landsmóti, hlaut 8,68, þar af þrjár níur og hlaut því í aðaleinkunn 8,45 og er efst í flokki 6 vetra hryssa eftir fyrri hluta hæfileikadóma.

Lipperthof frá Þýskalandi sem Agnar Snorri Stefánsson situr, en hún hlaut 8,34 í hæfileikaeinkunn og 8,31 í aðaleinkunn. Þá er Meyla fran Jemthagen frá Svíþjóð í því þriðja, þrátt fyrir að hafa hrapað í hæfileikaeinkunn. Á kynbótasýningu í sumar hlaut hryssan 8,80 fyrir hæfileika en í dag 7,98 og er með í aðaleinkunn 8,07.

Allar hafa hryssurnar tækifæri á að hækka hæfileikaeinkunn sína á fimmtudag þegar yfirlitssýning kynbótahryssa fer fram.

Nokkuð skemmtileg stemning er að myndast í St. Radegund, þjóðfánar blakta í áhorfendastúkunum og hrossunum er klappað lof í lófa fyrir góðar sýningar.

Meðfylgjandi er dómur Rauðhettu:

Sköpulag:

Höfuð   7.5

Háls/herðar/bógar         8.5

Bak og lend        8

Samræmi            8

Fótagerð             8

Réttleiki               7

Hófar    8.5

Prúðleiki              8.5

Sköpulag             8.11

Hæfileikar:

Tölt        9

Brokk    8.5

Skeið     8.5

Stökk    8

Vilji og geðslag 9

Fegurð í reið      9

Fet         7.5

Hægt tölt            8.5

Hægt stökk        8

Hæfileikar           8.68

Aðaleinkunn      8.45

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link