Rauðskeggur frá Kjarnholtum I til notkunar á Feti

  • 6. júní 2021
  • Fréttir

Rauðskeggur mætir í hólf mánudaginn 14 júní á hrossaræktarbúinu Feti, pantanir berist í síma 8470810. Þeir sem hafa nú  þegar pantað geta komið með hryssur helgina 12-13. júní.

Verð er 160.000 með öllu og einum sónar.

Rauskeggur er undan Kiljani frá Steinnesi og Heru frá Kjarnholtum 1. Hann hefur hlotið 8,76 fyrir sköpulag, 8,92 fyrir hæfileika í aðaleinkunn 8,87. Fyrir eiginleikana skeið og samstarfsvilja hlaut hann 9,5 en 9,0 fyrir Háls,herðar og bóga, bak og lend, samræmi,hófa, tölt, greitt stökk, fegurð í reið og hægt tölt.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link