Rausnarlegur styrkur Hrossaræktar.is

  • 2. júlí 2011
  • Fréttir
Rausnarlegur styrkur Hrossaræktar.is

Fulltrúar Hrossaræktar.is afhentu fulltrúum Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna rúmlega 2 milljóna króna styrk við litla athöfn í sólinni á Vindheimamelum í dag.

Styrkurinn er afrakstur söfnunar þar sem boðnir voru upp folatollar á Stóðhestaveislu í Ölfushöll í vetur og happdrættismiðar seldir í kjölfarið. Í máli Huldu G. Geirsdóttur kom fram að hrossaræktendur hafi tekið málefninu mjög vel og að rúmlega 50 stóðhestseigendur  hafi gefið folatolla sem nýttir voru í uppboðið og happdrættið. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link