Reiðhallasýningar, hestaleikvangur og skráning kynbótahrossa

Þegar fór að vora fór að létta á samkomutakmörkunum. Reiðhallarsýningar voru haldnar víðs vegar um land, og var loksins hægt að halda Stóðhestaveisluna aftur.
Hestamannafélag Uppsveitanna (áður hestamannafélögin Smári, Logi og Trausti) fékk loksins nafn og er nú hestamannafélagið Jökull.
Sylvía Sigurbjörnsdóttir tók við sem nýr formaður Félags tamningamanna
Undirbúningur fyrir Landsmót 2022 var í fullum gangi. Slagorð mótsins var Loksins Landsmót og mikill hugur var í mótshöldurum. Gefin voru út tvö Landsmótslög; Þarfasti þjóninn og Drottning um stund.
Hestamannafélagið Fákur kynnti fyrirætlanir/áform sín um byggingu á hestaleikvangi á félagssvæði Fáks í Víðidal. „Fákshöllin“ á að verða hestaleikvangur Reykjavíkur og um 12.500 m² að stærð.
Gæðingadómarafélag LH í samstarfi við LH gáfu út myndbandið „Afhverju gæðingakeppni?“ sem ætlað var að vekja upp umræðu um ágæti keppnisgreinarinnar.
Hestamannafélagið Fákur fagnaði 100 ára afmæli sínu 24. apríl.
Röðuninni á WorldRanking listanum var breytt úr því að vera raða eftir frammistöðu knapa óháð hesti í það að vera raða eftir röðun parsins þ.e.a.s knapa og hestsins.
Það ætlaði allt um koll að keyra þegar skráningar á kynbótasýningar hófust. Brösulega gekk að komast inn á vefin hjá RML og hrundi kerfið oftar enn einu sinni.
Mikið misræmi hefur verið á tölum um fjölda hrossa síðustu ár og talning á þeim í ólestri. Fjöldi hrossa hefur verið mjög á reiki síðan talning forðagæslumanna var aflögð fyrir nokkrum árum og ekki tekist að fá áreiðanlegar tölur um hrossastofninni í landinu síðan þá.
Kynbótasýningar hófust þegar líða tók á vorið en fyrsta kynbótasýning ársins fór fram í Neuler í Þýskalandi.
Kynbótadómaranefnd FEIF gaf frá sér myndband sem tilraun til að skýra hvað farið sé fram á að sé sýnt þegar um hæstu einkunnir er að ræða (9,0 eða hærra).
Heimset í hæð á herðarkamb var slegið þegar Gandi frá Rauðalæk mældist 157 cm á herðar. Hann sló sitt eigið met frá því í fyrra þegar hann mældist 156 cm. Drottning frá Söðulsholti var mæld 154 cm. á herðarkamb seinna um sumarið og er hún eina hryssan sem hefur verið mæld svo há á herðakamb í kynbótadómi með stangarmáli.
Álfadís frá Selfossi var felld eftir að hafa slasast illa á afturfæti en Álfadís skilur eftir sig gríðarstórt spor í íslenska hrossastofninum sem seint verður fylgt eftir.
Íslenski hesturinn tók að sér að svara tölvupósti ferðamanna
Úrtökur fóru fram út um allt land fyrir Landsmót hestamanna. Misjafnt var á milli félaga hvort haldnar voru ein eða tvær umferði, hvort báðar umferðir giltu, hvort umferðirnar væru valkvæðar, o.fl.
Hannibal frá Þúfum varð hæst dæmdi klárhesturinn á landinu þegar hann var sýndur af Mette Mannseth í vor. Hann hlaut 8,68 í aðaleinkunn.
Starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir skipaði í lok árs 2021 til að skoða starfsemi, eftirlit, löggjöf og regluverk í kringum blóðmerarhald skilaði skýrslu sinni. Tók Svandís í kjölfarið ákvörðun um að gera starfsemi í kringum blóðmerahald leyfisskylda.
Eiðfaxi Vor kom út
Gunnar Arnarsson rifjaði upp með lesendu eftirminnilegustu hrossin sem hann hefur komið á bak á. Umfjöllun var um Álfadísi frá Selfossi og afkvæmin hennar. Ræktandinn Karl Áki Sigurðsson var tekinn tali sem og hin þýska Nicki Pfau sem hefur verið gríðarlega öflug í hrossasölu hérlendis. Við kynntumst ræktendum í Skáney, Kaplahestum á samfélagsmiðlum og Sys Pilegaard frá Noregi. Jens Einarsson skrifaði um toppana á Landsmóti 1982 og Auður Stefánsdóttir deildi með lesendum Eiðfaxa uppáhalds hestaferðinni sinni.