Reiðhallir geta opnað að nýju og skipulagt barnastarf hafist

  • 24. apríl 2020
  • Fréttir

Fjöldamörk samkomubanns hækka úr 20 manns í 50 fyrir fullorðna þann 4.maí næstkomandi, á sama tíma falla fjöldatakmarkanir barna úr gildi  og þá hefur ráðuneyti mennta- og menningarmála gefið út tilkynningu með upplýsingum um tilhögun skóla-, frístunda- og íþróttastarfs barna og ungmenna. Þar segir að æfingar og keppnir í skipulögðu íþróttastarfi barna og ungmenna yngri en 16 ára séu heimilar án áhorfenda eða fullorðinna gesta eftir 4. maí bæði utan og innanhúss en 2ja metra fjarlægðarreglan enn í gildi. sjá nánar á vef stjórnarráðsins.

Mest mega 7 fullorðnir æfa saman úti við en 4 fullorðnir innanhúss og verður því hægt að opna reiðhallir á ný með þeirri takmörkun, þ.e. mest mega vera 4 inni í einu og þurfa þeir að gæta 2ja metra reglunnar auk handþvottar og sprittunar eins og áður, sjá nánar auglýsingu um takmörkun á samkomum vegna farsóttar á vef stjórnartíðinda.

Hestamenn ættu að geta glaðst yfir þessu allavega þeir sem vilja nota innanhúss aðstöðu til þjálfunar, þá getur æskulýðsstarf hafist að nýju í hestamannafélögum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link