Reiðhöllin til sölu
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að selja nokkrar af fasteignum borgarinnar en þar á meðal er Reiðhöllin í Víðidal. Þetta kemur fram á vef RÚV. Borgarráð samþykkti á fundi sínum að setja nokkrar af fasteignum sínum í sölumeðferð.
Heildarverð eignanna er um 7,5 milljarður en Reiðhöllin er metin á 209 milljónir. Fram kemur í bréfi skrifstofu-og eignasviðs að kostnaðaráætlun, tímaáætlun og tillögur um sölumeðferð hverrar eignar liggi fyrir um miðjan febrúar á næsta ári. Þó geti tillögur um sölu komið inn til borgarráðs fyrir þann tíma.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH