Reiðkennari ársins hjá FEIF
Á hverju ári býður FEIF landssamtök aðildarlanda að tilnefna einn reiðkennara/leiðbeinanda frá sínu landi sem reiðkennara/leiðbeinanda ársins. Kosning fer síðan fram á heimasíðu FEIF og í gær hófst kosningin um reiðkennara/leiðbeinanda ársins 2023 innan FEIF
Eftirfarandi reiðkennarar/leiðbeinendur voru tilnefndir af landssamtökum sínum í stafrófsröð:
- Dana Hausherr (Sviss)
- Emma Möller Ljungqvist (Svíþjóð)
- Fia Bergman (Finnland)
- Jacqueline Van Den Heuvel (Belgía)
- Jana Meyer (Bandaríkin)
- Lena Maxheimer (Þýskaland)
- Þorsteinn Björnsson (Ísland)
HÉR er hægt að kjósa en þú þarft að skrá þig inn á vefinn til að geta kosið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH