Reiðkennari fjallar um ábendingar og skilaboð knapa

  • 30. desember 2011
  • Fréttir
Reiðkennari fjallar um ábendingar og skilaboð knapa

Fimmtudaginn 5. janúar verður fræðslufyrirlestur í Funaborg með Jóhanni Friðgeirssyni reiðkennara. Jóhann hefur áratuga reynslu af reiðkennslu, ræktun, tamningum og sýningum bæði hér heima og erlendis. Jóhann mun fjalla um ábendingar knapa og skilaboð þeirra til hestsins. Jóhann mun svara fyrirspurnum úr sal og því tilvalið tækifæri til að fá góð ráð frá fagmanninum.

Funaborg opnar kl. 20:00 og fyrirlesturinn hefst kl. 20:30
Heitt á könnunni og bakkelsi með
Frítt inn og allir velkomnir

Fræðslunefnd Funa

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link