Reiðmaðurinn: nám í LbhÍ

  • 26. mars 2013
  • Fréttir
Reiðmaðurinn: nám í LbhÍ

“Nú er búið að opna fyrir skráningar í Reiðmanninn á heimasíðunni www.lbhi.is undir Umsóknir – veljið Starfsmenntanám!

Reiðmaðurinn er einingabært starfsmenntanám boðið fram í gegnum Endurmenntun LbhÍ. Námið er til tveggja ára og skiptist í fjórar verklegar helgar á önn vor og haust, alls 8 helgar á ári og bóklegt fjarnám. Auk þess er eina helgi á hvorri önn komið að Hvanneyri í fyrirlestra og sýnikennslu, annars fer verklegt nám fram í nálægt við meginþorra umsækjenda.
 
Hægt er að velja námið eftir landsfjórðungum, þegar umsóknarfrestur rennur út verður farið yfir umsóknirnar og verklegi staðurinn fundinn. Ef félagsmenn einhverra hestamannafélaga hafa áhuga þá er um að gera að skrifa nafn félagsins í athugasemdir með umsókninni eða koma því á annan hátt til undirritaðrar. Að jafnaði eru 12-14 í hverjum námshópi. Nánari upplýsingar um námið sjálft og kröfurnar má finna á heimasíðunni undir www.lbhi.is og Endurmenntun – Reiðmaðurinn,“ segir í tilkynnignu frá LbhÍ
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link