Reiðmenn útskrifast á Hvanneyri
Sextíu nemar úr námskeiðsröðinni „Reiðmanninum“ útskrifuðust á Skeifudaginn, sem haldinn var hátíðlegur á Hvanneyri sumardaginn fyrsta.
Útskriftarhóparnir voru frá Sörlastöðum, Borgarnesi, Akureyri, Iðavöllum og Flúðum. Verklegir kennarar vetrarins á þessum stöðum voru Halldór Guðjónsson, Heimir Gunnarsson, Erlingur Ingvarsson, Reynir Örn Pálmason og Ísleifur Jónasson. Um bóklega kennslu sá Gunnar Reynisson.
Nemar í Reiðmanninum taka þátt í Reynisbikarnum sem byggir á gæðingafimi og gangtegundakeppni. Um þrír frá hverjum hópi taka þátt í undanúrslitum og loks riðið til úrslita á Skeifudegi. Að þessu sinni var það Eyrún Jónasdóttir frá Kálfholti II sem eftir mjög jafna og spennandi keppni bar sigur úr býtum.
Við þetta tækifæri kom Kristinn Bjarni Þorvaldsson frá Ásbirni Ólafssyni ehf og innflytjandi Kerckhaert færandi hendi og gaf Landbúnaðarháskólanum forlátan steðja, sem Ágúst Sigurðsson tók á móti og þakkaði vel fyrir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH