Reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni með fötlun
Hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ býður upp á reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni með fötlun nú í haust.
Eftirfarandi námskeið eru í boði haustið 2012 :
Námskeið A – 5 vikna námskeið (kennt 1 sinnu í viku)
Mikill stuðningur – þeir sem þurfa aðstoð með að stýra hestinum og annan stuðning.
Dagsetningar: Mánudagar 1.okt – 29.okt. kl. 14:45 – 15:45. (1.okt, 8.okt, 15.okt,22.okt og 29.okt)
Verð: 18.000 kr.
Námskeið B – 8 vikna námskeið (kennt 1 sinni í viku)
Enginn stuðningur – þeir sem þurfa lítinn sem engan stuðning við að stýra hestinum og geta riðið sjálfstætt.
Dagsetningar: Miðvikudagar 3.okt – 21.nóv. kl. 14:45 – 15:45 (3.okt, 10.okt, 17.okt, 24.okt, 31.okt, 7.nóv, 14.nóv og 21.nóv)
Verð: 25.000 kr.
Námskeið C – 5 vikna námskeið (kennt 1 sinni í viku)
Byrjendur – Þeir sem eru að koma á námskeið í fyrsta skipti og vilja prófa sig áfram í hestamennskunni.
Dagsetningar: Fimmtudagar 4.okt – 1.nóv kl. 14:45 – 15:45 (4.okt, 11.okt, 18.okt, 25.okt og 1.nóv).
Verð: 18.000 kr.
Námskeið D – 8 vikna námskeið (kennt 1 sinni í viku)
Lítill stuðningur – þeir sem þurfa lítinn stuðning við að stýra hestinum en þurfa aðhald aðstoðarmanns.
Dagsetningar: Föstudagar 5.okt – 23. nóv kl. 14:45 – 15:45 (5.okt, 12.okt, 19.okt, 26.okt, 2.nóv, 9.nóv, 16.nóv og 23.nóv).
Verð: 25.000
Námskeið E – 4 vikna námskeið (kennt 2svar í viku) Framhaldsnámskeið
Enginn stuðningur – þeir sem þurfa lítinn sem engan stuðning við að stýra hestinum og geta riðið sjálfstætt.
Dagsetningar: Þriðjudagar og fimmtudagar, 20.nóv – 13.des. kl. 14:45 – 15:45 (20.nóv/22.nóv, 27.nóv/29.nóv, 4.des/6.des, 11.des/13.des.)
Verð: 25.000 kr.
Fyrir hverja er námskeiðið:
Öll börn og ungmenni sem við einhvers konar fötlun eða skerta getu að stríða vegna sjúkdóma eða af öðrum ástæðum og sem hafa áhuga á að umgangast hesta eða vilja kynnast hestamennsku.
Markmið námskeiðsins:
• Eiga frábæra stund saman í skemmtilegur umhverfi
• Geti umgengist hesta af öryggi og óttaleysi
• Að kynnast hestinum og læra undirstöðuatriði í umhirðu hestsins.
• Lært undirstöðuatriði í reiðmennsku eftir getu hvers og eins
• Auka sjálfstæði og færni í samskiptum við hesta
• Að bæta líkamsvitund
• Að auka samhæfingu handa, fóta og skynfæra.
• Styrkja leiðtogahlutverk í samskiptum við hestinn.
Lögð er áhersla á fjölbreytni og að allir nemendur fái sem mest út úr námskeiðinu eftir þörfum hvers og eins.
Kennslan er í höndum reyndra leiðbeinanda með margra ára reynslu í reiðkennslu fatlaðra og aðrir aðstoðarmenn eftir þörfum.
Hvað er innifalið í námskeiðsgjaldi:
Öll kennsla og kennslugögn
Lagðir eru til hestar fyrir hvern og einn sem og allur útbúnaður til reiðar þar á meðal sérsmíðaðir hnakkar og annar útbúnaður eftir þörfum.
Allir þátttakendur fá veglega kennsluhandbók og viðurkenningarskjal í lok námskeiðs.
Frekari upplýsingar og skráning er á www.hordur.is eða hjá Auði G. Sigurðardóttur – s: 8997299 eða 8986017. Netfang: [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH