Reiðnámskeið hjá Unn Krogen
Eiðfaxa barst þessi spennandi tilkynning:
„Vegna fjölda áskoranna mun Unn Krogen halda annað námskeið á Íslandi dagana 17.-20. mars, eða á fimmtudegi, föstudegi og sunnudegi (frí á laugardegi). Námskeiðið verður í formi einkatíma og haldið að Borg í Þykkvabæ.
Mikil ánægja var með síðasta námskeið sem Unn hélt í Rangárhöllinni í janúar en hún hefur gríðarlega reynslu, bæði sem þjálfari og reiðkennari. Námskeiðið kostar 30.000 kr. Fyrstir koma, fyrstir fá.
Skráning á netfangið [email protected] eða hjá Daníeli 860-3559.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH