Reiðnámskeið með Rúnu Einarsdóttur

  • 27. febrúar 2013
  • Fréttir
Reiðnámskeið með Rúnu Einarsdóttur

„Helgina 9. og 10. mars verður reiðnámskeið með Rúnu Einarsdóttur í reiðhöllinni á Akureyri. Áhersla verður lögð á einstaklingsmiðaða kennslu og mæta knapar í fyrsta tíma tveir og tveir en að öðru leyti fer námið fram í einkatímum.

Námskeiðsgjald er 25.000 kr en þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með námskeiðinu en hafa ekki tök á að mæta með hest geta gert það gegn vægu gjaldi (1500 kr.).

Tekið er á móti skráningum til 27. febrúar á netfangið [email protected]   (Lina Eriksson) eða í síma 844 1369.

Námskeiðið er haldið á vegum Léttis og hafa félagsmenn forgang. Tíu þátttakendur komast að á námskeiðinu en ef fleiri skrá sig verður dregið úr hópnum. Þátttakendur greiða 5000 kr. staðfestingargjald eftir útdrátt. Staðfestingargjald skal leggja inn á reikning Léttis: 0302-26-15839 og kt. 430269-6749.

Ef tilskilinn fjöldi næst ekki fellur námskeiðið niður,“segir í tilkynningu frá fræðslunefnd Léttis

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link