Reiðsýning brautarskráningarkandídata í reiðmennsku og reiðkennslu
Reiðsýning brautarskráningarkandídata í reiðmennsku og reiðkennslu fór frá á aðalreiðvelli Háskólans á Hólum laugardaginn 21. maí. Þetta er mikil hátíð og jafnframt óður nemenda skólans til hestsins því án þeirra væri námið ekki með þá sérstöðu sem raun ber vitni. Nemendur sýndu í reiðsýningunni hluta af þeim hestum sem þau hafa unnið með í náminu og þá sérstaklega þá hesta sem þau voru með á lokaári námsins við skólann. Einnig eru sýnd nokkur af helstu prófum sem nemendur hafa þreytt í náminu. Í augum flestra sem til þekkja markar reiðsýningin lokapunktinn í náminu við hestafræðideildina og stundin, þegar væntanlegir reiðkennarar klæðast bláa jakkanum í lok sýningar, er fyrir mörgum jafngildi brautskráningar. Enda fjölmenna fjölskyldur og vinir nemendanna heim að Hólum til að fagna með sínu fólki.
Að þessu sinni munu 15 kandídatar brautarskrást í reiðmennsku og reiðkennslu þann 10. júní næstkomandi.
Við þetta tækifæri tíðkast að veita tvenns konar viðurkenningar: FT skjöldurinn fyrir bestann árangur í lokaverkefni í reiðmennsku, þau verðlaun hlaut að þessu sinni, Vera Evi Schneidershen. Morgunblaðshnakkurinn fyrir besta samanlegðan árangur í reiðmennsku námskeiðum yfir öll þrjú árin (vegið meðaltal m.v. vægi hvers þáttar) – þar var gríðarlega mjótt á munum en Birta Ingadóttir var þar hlutskörpust.
Hólaskóli er afar stolt af útskriftarkandídötunum okkar og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.
Brautskráning nemenda frá öllum deildum skólans fer síðan fram við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð, föstudaginn 10. júní nk.
Hægt er að horfa á reiðsýninguna með því að smella á slóðina HÉR
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH