Reiðtúr er ekki gefinn

  • 29. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Dæmi um að fólk sameinist um hross

Kostnaður við hestahald hefur aukist eins og flest annað síðustu misseri. Nú kostar orðið um 30 þúsund krónur að hafa hest í hirðingu og fóðrun á höfuðborgarsvæðinu. Er þá innifalið básaleiga, fóður og spænir (undirburður). Heyrst hafa tölur upp í 36 þúsund á hest. Þannig að fjölskyldameð fjóra hesta í „pension“ þarf að greiða um 120 þúsund á mánðuði fyrir fóður og hirðingu, fyrir utan annan kostnað sem fylgir þessu skemmtilega en jafnframt kostnaðarsama sporti.

Dæmi eru um að fólk sameinist um að halda hest og skiptist á að nota hann; hafi þá ákveðna daga í viku. Ennþá er mun ódýrara að halda hross úti á landi og skýrist það fyrst og fremst af því að básaleiga, sem helst nokkuð í hendur við markaðsverð á hesthúsum, er mun lægri þar en á höfuðborgarsvæðinu.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link