Rekstur og vígsla á Álftanesi
Laugardaginn 22. desember mun hestamannafélagið Sóti reka hrossastóð úr Bessastaðanesi, meðfram bökkum og yfir í hesthúsahverfið við Breiðumýri.
Um leið mun félagið vígja nýju reið- og kennslugerði félagsins sem félagar hafa unnið í sjálfboðavinnu síðan í september. Gerðið er veglegt, heilklætt 20×40 metrar og 2,2 metra hátt með áhorfendabekkjum, geymslu og litlu áföstu gerði. Bæjarstjórar Álftanes og Garðabæjar, Snorri Finnlaugsson og Gunnar Einarsson, munu mæta og vígja gerðið formlega.
Þeir sem hafa hug á að upplifa alvöru réttarstemningu innan bæjarmarkanna og fagna með Sótamönnum er velkomið að mæta við hið nýja gerði kl. 13 á morgun.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH