Reykjavíkurmót 2010 – skráning
Reykjavíkurmeistaramótið verður haldið dagana 5.-9.maí og er World Ranking mót.
Skráning fer fram í gegnum netið dagana 20.-27.apríl og má nálgast tengilinn inn á www.fakur.is (einungis hægt að skrá þar gegn kortanúmeri). Einnig verður tekið á móti skráningum í anddyri reiðhallarinnar þann 27.apríl kl.20-22 og í gegnum síma á sama tíma (nánari upplýsingar síðar).
Allar hefðbundnar keppnisgreinar verða í boði. Fákur áskilur sér rétt til að fella niður keppnisgrein náist ekki næg þátttaka.
Flokkaskipting:
- börn
- unglingar
- ungmenni
- 2.flokkur
- 1.flokkur
- meistaraflokkur
Skráningagjöld verða kr.2.500 fyrir börn og unglinga og kr.4.000 fyrir ungmenni, fullorðna og skeiðgreinar (100 m, 150m og 250 m) á hverja skráningu. 1000 kr. af hverri skráningu í skeiðinu mun renna í verðlaunapott fyrir 1.sætið í 100 m skeiðinu.
Kveðja,
Nefndin.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH