Reykjavíkurmót Fáks
Opna WR* Reykjavíkurmót Fáks fer fram í Víðidal dagana 3.-6.maí næstkomandi.
Keppt verður í eftirtöldum flokkum ef næg þátttaka fæst, að öðrum kosti áskilur mótanefnd sér rétt til að fella niður eða sameina einstaka flokka. B-úrslit verða riðin í þeim flokkum sem ná 20 eða fleiri skráningum:
- Barnaflokkur: 4g, tölt
- Unglingaflokkur: 4g, 5g, tölt, slaktaumatölt og gæðingaskeið
- Ungmennaflokkur: 4g, 5g, tölt, slaktaumatölt og gæðingaskeið
- 2.flokkur: 4g, 5g, tölt
- 1.flokkur: 4g, 5g, tölt, slaktaumatölt og gæðingaskeið
- Meistaraflokkur: 4g, 5g, tölt, slaktaumatölt og gæðingaskeið
- 100 m skeið
Skráning
Skráning fer fram í Reiðhöllinni þriðjudaginn 24.apríl milli kl. 19:00 og 21:00. Hægt er að mæta á staðinn eða hringja í eitthvað af neðantöldum símanúmerum. Einnig verður hægt að skrá með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected], gegn því að allar upplýsingar komi fram ásamt kortanúmeri og símanúmeri viðkomandi, fram til kl. 23:59 á þriðjudaginn 24.apríl. Eftir það verður ekki undir neinum kringumstæðum tekið við skráningum og skráningar sem berast eftir auglýstan frest álitnar ógildar.
- 567 0100 – Vodafone
- 567 2166 – Vodafone
- 898 8445 – Vodafone
- 897 4467 – Síminn
- 864 0505 – Síminn
- 697 3630 – Nova
Gjöld eru sem hér segir:
Skráning per grein fullorðnir og ungmenni – kr. 5.000 (skuldlausir Fáksfélagar kr. 4.000)
Skráning per grein börn og unglingar – kr. 3.500 (skuldlausir Fáksfélagar kr. 2.500)
Breytingagjald eftir að skráningu lýkur – kr. 1.000
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH