Reykjavíkurmótinu frestað
Vegna hestaveiki, sem gengur yfir stóran hluta keppnishestana núna, hefur verið ákveðið að fresta Reykjarvíkurmóti Fáks sem hefjast átti í næstu viku. Þar sem fyrirséð var að margir gátu ekki tekið þátt í mótinu vegna veikinnar og að hafa verður velferð hestana í huga þá var þessi ákvörðun tekin og ákveðið að fresta mótinu fram í júní.
Mótið verður 9. – 13. júni og verður skráning auglýst síðar. Þeir sem voru búnir að skrá á netinu verða að skrá aftur því þær skráningar verða eyðilagðar enda var ekki búið að rukka fyrir þær.
Mótanefnd Fáks
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing