Reyr sigursæll í Noregi
Keppnishesturinn Reyr frá Melabergi var fluttur til Noregs í byrjun febrúar.
Reyr er reyndur og sigursæll á keppnisbrautinni, ferilskrá hans á Worldfeng sýnir glæstan feril bæði í íþrótta- og gæðingakeppnum, undir stjórn Önnu Bjarkar Ólafsdóttur og Ásmundar Ernis Snorrasonar sem meðal annars varð Íslandsmeistari í tölti ungmenna á klárnum árið 2012. Reyr er fæddur árið 2002, undan Lúðvíki frá Feti og Ræju frá Keflavík.
Keppnisferill Reyrs heldur áfram hinum megin hafsins. Hann kom fram á stóru móti í Noregi um helgina, undir stjórn ungknapanum Camillu Wangen og sigruðu þau fjórgangskeppni mótsins með einkunnina 7,07. Má ætla að hin unga Camilla ætli að láta reyna á að komast með Rey á Heimsmeistaramót.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH