Ríðum á Landsmót
Hestamannafélagið Sóti hvetur hestamenn að fjölmenna í hópreið nk. sunnudag í fréttatilkynningu:
„Hestamannafélagið Sóti hvetur félaga í Mána, Brimfaxa, Sörla, Andvara, Gusti, Fáki og Herði til að fjölmenna í reiðina ,,Ríðum á Landsmót“ á sunnudaginn og upplifa gömlu stemninguna sem fólst í því að fara ríðandi á Landsmót. Klæðnaður við hæfi hestaferðalaga. Sjáumst hress á sunnudaginn!“ segir í tilkynningunni.
Hópreiðin „Ríðum á Landsmót“ hefst sunnudag kl. 9 á Bessastöðum á Kjalarnesi og riðið í Víðidal á landsmót. Allar upplýsingar um hópreiðina má nálgast hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH