Ríflega 640 upptökur frá kynbótasýningum vorsins
Nú í vor, stóð Eiðfaxi fyrir þeirri nýbreytni á vorsýningum RML að taka upp allar forsýningar kynbótahrossa. Fyrir vikið eru því til ríflega 640 upptökur í bestu mögulegu gæðum af þeim kynbótahrossum sem komu til fullnaðardóms þetta vorið.
Eigendum gefst nú kostur á að festa kaup á upptökum af forsýningum sinna hrossa og kostar hver upptaka 15.000 kr. +vsk. Það eina sem þarf að gera er að senda póst á [email protected] með upplýsingum um viðkomandi hross og kennitölu greiðanda og upptökurnar verða sendar til kaupenda 1-3 virkum dögum eftir pöntun.
Ekki hika við að hafa samband og fá upptöku af þínu hrossi – frábær leið til að rifja upp afrek vorsins!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH