RML býður upp á mælingar á hrossum

  • 5. apríl 2024
  • Fréttir

Alls eru 11 skrokkmál mæld á hrossi fyrir kynbótadóm og nú er boðið upp á þá þjónustu heima í hesthúsum.

Þjónusta við hrossaræktendur

Pétur Halldórsson ritar grein á vef RML þar sem umfjöllunarefnið er ný þjónusta RML við hrosseigendur, mælingar á hrossum.

Þar segir m.a. Öll venjubundin mál sem notuð eru við hrossadóma eru tekin eða alls 11 skrokkmál auk mælinga á hófalengd og holdastigunar. Niðurstöðurnar eru vistaðar í upprunaættbókinni WorldFeng og þar aðgengilegar og sýnilegar öllum notendum. Mælingar hafa sýnt sig að hafa ótvírætt gildi, þær eru leiðbeinandi við sköpulagsdóma og sýnt hefur verið fram á tengsl margra þeirra við hæfileika og aðaleinkunn í kynbótadómi.

Þjónustan hentar vel:

  • Fyrir seljendur hrossa – sem hluti söluupplýsinga og staðlaðrar lýsingar.
  • Fyrir eigendur keppnishrossa sem þurfa opinbera staðfestingu á hæð á herðar (M1) vegna þátttöku í keppni, í samhengi við reglur um leyfða hófalengd.
  • Fyrir eigendur hrossa sem einfaldlega vilja afla og skrá gögn um sín hross í WorldFeng, utan kynbótasýninga.

Lesa má greinina inn á vef RML með því að smella hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar