Röðun hrossa klár

  • 19. júní 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Aukasýning verður á Kjóavöllum.

Aukasýning verður á Kjóavöllum á svæði hestamannafélags Spretts dagana 22. – 24. júní 2015.

Dómar hefjast kl. 13:00 mánudaginn 22. júní. Yfirlitssýning verður miðvikudaginn 24. júní. Alls eru 48 hross skráð til dóms.

Búið er að birta hollaröðun á vef RML og má nálgast hana með því að smella á hnappinn „Kynbótasýningar“ hægra megin á forsíðunni. Einnig má velja „Röðun hrossa á kynbótasýningum“ undir Búfjárrækt/Hrossarækt. 

Eigendur og sýnendur eru beðnir um að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Röðun hrossa er hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link