Röðun hrossa á Mið-Fossum
Kynbótasýning verður á Mið-Fossum í Borgarfirði dagana 3.-5. júní 2015. Dómar fara fram miðvikudaginn 3. júní og fimmtudaginn 4. júní og hefjast klukkan 08:00. Yfirlitssýning verður föstudaginn 5. júní. Alls eru 70 hross skráð til dóms.
Búið er að birta hollaröðun á sýningunni hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella hér.
Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.
Þetta kemur fram í frétt frá RML.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH