Rúmir alhliða hestar
Rúmlega þriðjungur sýndra stóðhesta voru í 6 vetra flokknum, alls 191. Álfur frá Selfossi á tvo fulltrúa í þessum flokki þá Svaða frá Hólum og Skagann frá Skipaskaga. Styrkleikinn er mikill í þessum flokki en efsti hestur er með næst hæstu aðaleinkunn ársins. Efsti hestur í flokknum er Helgnýr fra Pegasus en upprunaland hans er Danmörk. Eigandi Helgnýs er Jóhann Skúlason en hann sýndi einnig hestinn. Helgnýr er jafn alhliða hestur með 9,0 fyrir allar einkunnir hæfileika fyrir utan brokk og fet en hann hlaut 8,5 fyrir þá þætti. Helgnýr var þriðji á heimsmeistaramótinu í Herning þar sem hann hlaut 8,69 í aðaleinkunn.
Annar er heimsmeistarinn Viking fran Österåker en Viking var sýndur af Vigni Jónassyni. Viking er fyrsti hesturinn fæddur utan Íslands til að fá yfir 9,00 fyrir hæfileika. Viking hlaut 9,02 fyrir hæfileika, fyrir brokk, fegurð í reið, hægt tölt og vilja og geðslag hlaut hann 9,5 og fyrir tölt, fet og hægt stökk 9,0. Þriðji er Svaði frá Hólum en hann var fulltrúi Íslands á heimsmeistaramótinu í Herning þar sem hann hlaut sinn hæsta dóm 8,63. Svaði hlaut fyrir hæfileika 8,79 og fyrir sköpulag 8,39. Þessi einkunn dugði Svaða til að næla sér í silfur fyrir Íslandshönd.
6 vetra stóðhestar
8.76 Helgnýr fra Pegasus Garri Reykjavík Grein Sauðárkróki Danmörk
8.71 Viking fran Österåker Ísar Keldudal Von Vindheimum Svíþjóð
8.63 Svaði frá Hólum Álfur Selfossi Ösp Hólum Ísland
8.60 Skaginn frá Skipaskaga Álfur Selfossi Assa Akranesi Ísland
8.54 Stekkur frá Skák Kvistur Skagaströnd Lukka Búlandi Ísland
8.51 Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum Keilir Miðsitju Álfadís Selfossi Ísland
8.51 Snarfari fra Slippen Snar Kjartansstöðum Héla Kílhrauni Danmörk
8.48 Galdur frá Reykjavík Seiður Flugumýri II Snerra Reykjavík Ísland
8.48 Styrkur frá Stokkhólma Tindur Varmalæk Tollfríður Vindheimum Ísland
8.45 Brimnir frá Efri-Fitjum Hnokki Fellskoti Ballerína Grafarkoti Ísland
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH