Rúmlega 300 skráningar á Suðurlandsmót
Nú eru allir ráslistar fyrir Suðurlandsmót og Skeiðleika Skeiðfélagsins komnir í kappa appið ásamt dagskrá. Rúmlega 300 skráningar eru á mótið en það hefst kl 18:00 föstudaginn 20.ágúst.
Dagskráin er þétt og við hjálpumst að við að láta vera gott flæði inn og út af keppnisvelli og pössum uppá tímasetningar.
Engar veitingar verða um helgina því miður.
Pössum vel uppá allar sóttvarnir.
Ráslistar og dagskrá eru birt með fyrirvara um mannleg misstök.
Allar afskráningar fara eingöngu fram í síma 8637130
Mótanefndin
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH