Sædynur á stórsýningunni Fákar og fjör
Úrval gæðinga koma fram og fjölbreytt atriði verða í boði á stórsýningunni Fákar og fjör sem fer fram í Top Reiter höllinni á Akureyri nk. laugardag kl. 18, að er fram kemur í tilkynningu frá hestamannafélaginu Létti:
“Það verður margt góðra gesta, knapa og hesta, sem munu mæta til leiks. Má þar nefna gæðinginn og stóðhestinn Sædyn frá Múla sem Ólafur Ásgeirsson mætir með til leiks, heimamenn og konur þeyta fákum sínum í fjölbreyttum atriðum og þarna verður eitthvað í boði fyrir alla fjölskylduna. Nú Top Reiter liðið sjálft kemur í öllu sínu veldi á topphrossum og Magnús Jósefsson stórhrossaræktandi í Steinnesi mæti með allt sitt lið í formi úrvals hrossa og knapa. Baldvin Ari og fjölskylda munu einni sýna gestum það helsta úr sinni ræktun sem nú er undir hnakknum. Miðasala ef hafin í verslunum Fákasports og Líflands á Akureyri. Miðaverð kr. 2.500 og frítt fyrir 12 ára og yngri. Sjáumst á laugardaginn – sýningin hefst kl. 18:00 í Top Reiterhöllinni. Verið velkomin til okkar.”
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH