Sænska meistaramótið í gæðingakeppni
Mynd frá Norðurlandamótinu í Svíþjóð í ár. Ljósmynd: Cassandra Laikmets
Sænska meistaramótið í gæðingakeppni hefst á morgun, fimmtudaginn 3. september, og stendur fram á sunnudag. Mótið fer fram í Norrköping og verður sýnt frá því beint á EiðfaxaTV.
Keppt er í öllum hefðbundnum greinum gæðingakeppninnar auk gæðingatölts. Skráning á mótið er góð en alls eru það 215 pör sem taka þátt og er þáttakendafjöldinn mestur í gæðingatölti fullorðinna þar sem alls 84 hestar eru skráðir til leiks.
Dagskrá
Hér að neðan má sjá dagskrá mótsins og miðast tímasetningar við íslenskan tíma.
Fimmtudagur 3. september
07:00
Gæðingatölt fullorðinna
Gæðingatölt unglinga
Hádegishlé
B-flokkur ungmenna
A-flokkur
Föstudagur 4. september
07:00
Unglingaflokkur
Hádegishlé
B-flokkur
Gæðingatölt ungmenna
Laugardagur 5. september
07:00
Barnaflokkur
A-flokkur ungmenna
B-úrslit Gæðingatölt unglinga
B-úrslit Gæðingatölt fullorðinna
B-úrslit Gæðingatölt ungmenna
Hádegishlé
Gæðingatölt barnaflokkur
B-úrslit Unglingaflokkur
B-úrslit B-flokkur
B-úrslit B-flokkur ungmenna
B-úrslit A-flokkur
Sunnudagur 6. september
07:00
A-úrslit Gæðingatölt barnaflokki
A-úrslit Gæðingatölt unglinga
A-úrslit Gæðingatölt Ungmenna
A-úrslit Gæðingatölt fullorðinna
A-úrslit Barnaflokkur
Hádegishlé
A-úrslit Unglingaflokkur
A-úrslit B-flokkur ungmenna
A-úrslit B-flokkur
A-úrslit A-flokkur ungmenna
A-úrslit A- flokkur
„Hún er ekkert að gefa mér blítt auga“
Opnað fyrir umsóknir í Meistaradeildina 2027