Sænska Meistaramótið í Norrköping
Sænska meistaramótið í íþróttakeppni hófst í morgun en það fer fram í Norrköping og stendur fram á sunnudag. Í dag er keppt í tölti T1, Slaktaumatölti T2 og gæðingaskeiði. Á mótinu keppa fullorðnir, ungmenni og unglingar.
Svíarnir sýna beint frá mótinu og það frítt en eins og staðan er að þá er einungis ein víðmyndavél í gangi sem sýnir frá keppnissvæðinu.
Hægt er að fylgjast með mótinu í beinni útsendingu með því að smella hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH