Sænska meistaramótinu lokið

  • 11. september 2022
  • Fréttir

Saumur from Viby og Milla Bergqvist Mynd: Photohestur

Niðurstöður frá mótinu

Sænska meistaramótinu í gæðingakeppni er lokið. Mótið fór fram í fallegu haustveðri í Norrköping í Svíþjóð. Guðbergur frá Skagaströnd sigraði A flokkinn með 8,74 í einkunn en knapi á honum var Helena Adalsteinsdóttir. Þau unnu einnig þessa grein í fyrra. B flokkinn vann Týr från Svala Gård, knapi Sebastian Benje, með 8,81 í einkunn.

Keppt var bæði a og b flokki ungmenna en b flokk ungmenna vann Klara Solberg á Sabrínu frá Fornusöndum með 8,52 í einkunn og a flokk ungmenna vann Ebba Johannesen á Prins frá Blönduósi með 8,56 í einkunn en þetta er annað árið í röð sem þau vinna titilinn. Unglingaflokkinn vann Josephine Williams á Kristófer frá Hjaltastaðahvammi en þau hlutu 8,69 í einkunn og barnaflokkinn vann Milla Bergqvist á Saum från Viby, annað árið í röð, en þau hlutu 8,72 í einkunn.

Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr a úrslitum en heildarniðurstöður mótsins er hægt að sjá HÉR

Niðurstöður úr a úrslitum

A úrslit – A flokkur
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Guðberg frá Skagaströnd Helena Adalsteinsdottir 8,74
2 Eldjárn frá Skipaskaga James Faulkner 8,71
3 Karri frá Gauksmýri Jenny Göransson 8,70
4 Hrynjandi frá Horni I Kelly Eriksson 8,65
5 Björn frá Svignaskarði Daníel Smárason 8,62
6 Mói från Smedjan Louise Josefine Thilander 8,02
7 Boði från Åleby Johanna Asplund 2,65

A úrslit – B flokkur
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Týr från Svala Gård Sebastian Benje 8,81
2 Hrímnir frá Vatnsleysu Nicolina Marklund 8,74
3 Maharadza fra Hennum Fredrik Sandberg 8,72
4 Álfur från Granmyra Camilla Rolfsdotter 8,64
5 Næpa från Asplunda Johanna Asplund 8,59
6 Kvaran fra Slippen James Faulkner 8,58
7 Leistur från Toftinge Elsa Mandal Hreggvidsdóttir 8,57
8 Gustur från Skeppargården Caspar Logan Hegardt 8,55

A úrslit – Barnaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Milla Bergqvist Saumur från Viby 8,72
2 Isabella Larsson Leó från Änghaga 8,56
3 Tilma Lande Aleiga frá Hrafnkelsstöðum 8,54
4 Iris Roström Arfur frá Steinskoti 1 8,48
5 Alice Edvinsson Kareliusson Fleygur frá Skeiðvöllum 8,47
6 Olivia Agerhill Yssa från Agersta 8,44
7 Judith Aleborn Díva från Bräckeskog 8,38
8 Hanna Rosenberg Garon frá Öld 8,37

A úrslit – Unglingaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Josephine Williams Kristófer frá Hjaltastaðahvammi 8,69
2 Milla Logan Tibrá fra Vinkærgård 8,64
3 Alfons Bergqvist Snörp frá Berglandi I 8,57
4 Klara Nydahl Bragi frá Kópavogi 8,54
5 Elsa Johannesen Hljómur frá Túnsbergi 8,45
6-7 Gabriella Wästlund Aragon från Asplunda 8,38
6-7 Elvira Bach Jöfur från Äppellunde 8,38
8 Sanna Andersson Heiðmar frá Berglandi I 8,37
9 Milly Jäderström Caruzo frá Torfunesi 7,61

A úrslit – A flokkur ungmenna
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Ebba Johannesen Prins frá Blönduósi 8,56
2 Jonna Andersson Herakles från Stormsund 8,48
3 Kajsa Wennerström Öðlingur frá Hárlaugsstöðum 2 8,47
4 Viktor Elgholm Dreki från Lind 8,37
5 Astrid Tillström Atlas från Kärlek 8,32
6 Saga Bergefur Snæfinnur frá Sauðanesi 8,31
7 Moa Karlsson Glitnir frá Eikarbrekku 8,29
8 Hilma Pettersson Sága från Dahlgården 8,27

A úrslit – B flokkur ungmenna
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Klara Solberg Sabrína frá Fornusöndum 8,52
2 Alva Althén Vikar frá Lækjamóti 8,52
3 Tove Johansdotter Ægir frá Efra-Núpi 8,50
4 Vilma Billström Þrymgjöll frá Bergi 8,48
5 Leia Grahn Eyvar frá Álfhólum 8,43
6 Linnea Johannisson Prins-Rolex vom Vorsenzhof 8,41
7 Maja Högström Farsæll frá Hafnarfirði 8,31
8 Matilda Leikermoser Wallin Hekla frá Steinnesi 7,42

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link