Sagnakvöld til heiðurs Gunnari Bjarnasyni

  • 27. mars 2012
  • Fréttir
Í Ásgarði á Hvanneyri fimmtudagskvöldið 29. mars

Gunnarsvaka, Sagnakvöld til heiðurs Gunnari Bjarnasyni, verður haldið í Ásgarði á Hvanneyri fimmtudagskvöldið 29. mars n.k. og hefst kl. 20:00. Fram koma þjóðþekktir sagnaþulir og spaugarar. Má þar nefna snillinga eins og Guðna Ágústsson, Sigga Sæm, Einar á Skörðugili, Magnús Halldórsson, Sigurborgu á Báreksstöðum, Halldór í Holti og Valda Roy. Einnig láta ljós sitt skína menningarvitar eins og Gísli Einarsson og Bjarni safnstjóri á Hvanneyri auk þess sem karlakórinn Söngbræður kemur fram eins og hann leggur sig. Einnig kór nemenda, Hásir Hálsar. Léttar veitingar í boði og léttur aðgangseyrir sem allur rennur í sjóð til að reisa minnisvarða á vori komanda til heiðurs hinum mikla meistara.

Vakin er athygli á breyttu húsnæði en vegna gríðarlegs áhuga þurfti að færa viðburðinn í stærra húsnæði, aðalbyggingu Landbúnaðarháskólans; Ásgarð.

Takið kvöldið frá – þessu má enginn missa af!
Velkomin að Hvanneyri

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link