Samband byggingar og hæfileika
Dr. Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktarráðunautur verður með fyrirlestur í hestamannafélaginu Sörla næstkomandi fimmtudagskvöld, þann 15. janúar kl 20:00.
„Erindið snýst um samband byggingar og hæfileika íslenskra hrossa og áhrif skeiðgensins á ganglags hestsins. Hrossaræktendur og aðrir áhugamenn um hrossarækt látið þennan einstaka viðburð ekki framhjá ykkur fara.
Þessi fundur er í boði kynbótanefndar Sörla og er ókeypis. Ath. húsið opnar kl. 19:30,“ segir í tilkynningu frá kynbótanefnd hestamannafélagsins Sörla.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH