Sameiginlegt vetrarmót Háfeta og Ljúfs
Hestamannafélögin Háfeti í Þorlákshöfn og Ljúfur í Hveragerði og Ölfusi halda sameiginleg vetrarmót. Fyrsta mótið verður haldið í reiðhöll Háfeta á föstudaginn og hefst kl. 20.00. Keppt verður í þrígangi og er skráning á staðnum milli kl. 19 og 19.45;
Í fyrsta skipti verður flokkaskipting, það er að segja karlaflokkur og kvennaflokkur. Skráning verður á staðnum og er skráningagjald 2000 kr fyrir hestinn, frítt fyrir börn og unglinga. Stigakeppnin verður ekki sameiginleg hjá félögunum heldur verður sigurvegari hvers félags verðlaunaður á lokamóti. Einn inná í einu. Hver knapi velur þrjár gangtegundir til að sýna (fet, tölt, brokk, stökk og skeið).
Í úrslitum hefja allir leik og ríða tölt, brokk og fet. Fólk kýs svo hvort það vilji ríða stökk og þá gilda þrjár bestu einkunnir og það sama á við um skeið.
Karlaflokkur
Kvennaflokkur
Ungmennaflokkur
Unglingaflokkur
Barnaflokkur
Pollar
(Ef þátttaka í yngri flokkum er lítil verða úrslit hugsanlega sameinuð en verðlaun veitt fyrir hvern flokk)
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH