Samstarfsvilji – Ein tía og 38 hross hlutu einkunnina 9,5

  • 12. september 2020
  • Fréttir

Sólon frá Þúfum hlaut 10,0 fyrir samstarfsvilja og einkunnarorðin Mikil framhugsun - Mikil þjálni - Yfirvegun - Vakandi - Glaður mynd: Nicki Pfau

Nú þegar kynbótasýningum er lokið hér heima og einungis ein sýning er eftir í Evrópu er gaman að renna yfir níufimmur og tíur ársins í einstökum eiginleikum. Næsti eiginleiki sem við tökum fyrir hér á vef Eiðaxa er samstarfsvilji

Til þess að fá glögga mynd af því eftir hverju er verið að leita þegar eiginleikinn er metin er gripið niður í stigunarkvarða einstaklingadóma og lýsing á einkunninni 9,5-10 í þeim eiginleikum sem teknir eru fyrir hverju sinni.

Alls hlutu 38 hross einkunnina 9,5 fyrir samstarfsvilja  í ár og eitt 10,0.

Samstarfsvilji

Samstarfvilji er mat á framhugsun, þjálni og taugastyrk hestsins í gegnum alla sýninguna, þ.e. hversu fús hesturinn er til að leggja sig fram og bregðast við ábendingum knapans. Fyrir einkunnir 9,0 eða hærra skal það sýnt að hægt sé að hægja hrossið niður á fet í viðsnúningum á brautarendum. Hraðabreytingar á gangtegundum, losað um taum, slöngulínur og annað sem sýnir þjálni og samstarfsvilja getur vegið til hækkunar á einkunn sé það vel framkvæmt af hestinum.

9,5-10

Hesturinn sýnir frábæra þjálni, léttleika og samstarfsvilja í hvívetna. Hann er viljugur og vakandi fyrir ábendingum, kjarkaður og algjörlega spennulaus á öllum gangtegundum. Hesturinn er ávallt í léttu taumsambandi og yfirlínan er afar mjúk. Hesturinn er í andlegu jafnvægi og sýnir afköst á gangtegundum með lágmarks ábendingum frá knapa.

 

Listi yfir þau hross sem hlutu 9,5 – 10 fyrir samstarfsvilja í ár.

 

Nafn Uppruni Einkunn
Sólon Þúfum 10,0
Stjörnuspá Þúfum 9,5
Skinfaxi Lysholm 9,5
Tildra Kjarri 9,5
Vákur Vatnsenda 9,5
Vegur Kagaðarhóli 9,5
Engill Ytri-Bægisá I 9,5
Úlfhildur Strönd 9,5
Harpa-Sjöfn Hvolsvelli 9,5
Glampi Ketilsstöðum 9,5
Arthúr Baldurshaga 9,5
Snæfinnur Hvammi 9,5
Dropi Kirkjubæ 9,5
Rauðskeggur Kjarnholtum 9,5
Þoka Hamarsey 9,5
Sif Steinsholti 9,5
Hylling Akureyri 9,5
Næla Lækjarbrekku 2 9,5
Fold Flagbjarnarholti 9,5
Þór Torfunesi 9,5
Jökull Breiðholti í Flóa 9,5
Hnokki Eylandi 9,5
Álfaklettur Syðri-Gegnishólum 9,5
Vör Vestri-Leirárgörðum 9,5
Tanja Eystri-Hól 9,5
Hrönn Ragnheiðarstöðum 9,5
Gígur Ketilsstöðum 9,5
Fenrir Feti 9,5
Svarta Perla Álfhólum 9,5
Dröfn Feti 9,5
Hvellhetta Stangarlæk 1 9,5
Tími Breiðabólstað 9,5
Blysfari Þóreyjarnúpi 9,5
Leynir Garðshorni á Þelamörk 9,5
Álfamær Prestsbæ 9,5
Hreyfing Akureyri 9,5
Lýdía Eystri-Hól 9,5
Eygló Þúfum 9,5
Líf Lilla  Strackas 9,5

 

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link