Samtal kynbótadómara og ræktenda

  • 22. mars 2022
  • Fréttir
Góður fundur á Hellu í gær á vegum hrossaræktarsamtaka Suðurlands

Í gær fór fram á Hellu fundur á vegum hrossaræktarsamtaka Suðurlands. Elsa Albertsdóttir, ræktunarleiðtogi Íslands, tók samtal við ræktendur og sýnendur. Það var samdóma álit fundarmanna að fundurinn hafi tekist vel og verið afar hjálplegur í að opna á samtalið milli kynbótadómara, ræktenda og sýnenda.

Margt var rætt á fundinum. Elsa byrjaði á að fara yfir kynbótamatið og þær breytingar sem gerðar voru á því nú fyrr í mánuðinum. Nokkrar spurningar komu úr sal frá fundarmönnum sem hún svo svaraði.

Mesta umræðu fékk það hvort birta skildi fyrirfram hverjir verða dómarar á sýningum þannig að þeir sem skrá sig á tilteknar sýningar viti hverjir verða að dæma. Upplýsingar um dómara á sýningum liggja því ekki fyrir fyrr en sýning hefst. Þessu var breytt á sínum tíma til að sporna gegn því að ræktendur, sýnendur og/eða eigendur hrossanna gætu valið sér dómara. Mikil umræða skapaðist um þetta og voru flestir ræktendur sammála um að vilja fá að vita fyrirfram hverjir yrðu dómarar á hverri sýningu fyrir sig eins og áður tíðkaðist. Ræktendum fannst að tilgangurinn með breytingunni á sínum tíma hefði ekki leyst það vandamál sem það átti að leysa. Ræktendur vilja fá að setja hross sín í dóm hjá þeim sem þeir treysta og þeir telja að hafi besta þekkingu á dómsskalanum. Þannig vilja eigendur og sýnendur geta treyst því að þeir séu að fá það fyrir skráningargjöldin sem þeir ætluðust til a.m.k. að ákvörðunin sé þeirra um hvern þeir láti dæma sitt hross. Einnig var tekið fram á fundinum að oft eru sumir ræktendur og sýnendur með upplýsingar um hver sé að fara dæma sýninguna á meðan aðrir hafa ekki þær upplýsingar fyrr en í dóm er komið. Það er fagráð í hrossarækt sem tekur ákvörðun um þetta. Tveir fulltrúar Fagráðs voru á fundinum og bentu þeir á það að þetta mál væri stöðugt í umræðu hjá ráðinu.

Annað málefni sem fékk mikla umræðu var lengd sýningardaga. Margir voru á því að dómarar ynnu alltof langa daga og vilja sjá styttingu á þeim. Einnig barst í tal að opna samtal á milli dómara og sýnenda/eigenda/ræktenda með því að gefa því einfaldlega pláss í dagskránni í sýningarvikunni.

Fundargestir fóru allir sáttir af fundinum og þótti hann góður og gagnlegur. Margir nefndu það að vilja eiga fleiri samtöl til að ræða málefni sem brenna á ræktendum og eins dómurum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link