Sara Dís og Nökkvi mæta til A-úrslita
Sara Dís Snorradóttir og Nökkvi frá Syðra-Skörðugili fagna sigri í B-úrslitum. Ljósmynd: Cassanda Laikmets/CLfoto
Síðustu atriði dagsins á Norðurlandamóti í hestaíþróttum voru B-úrslit í þremur flokkum í gæðingakeppni þ.e. B-flokki ungmenna, A-flokki ungmenna og unglingaflokki.
B-flokkur ungmenna
Í B-flokki ungmenna var það hún Sara Dís Snorradóttir á Nökkva frá Syðra-Skörðugili sem efst stóð og tryggði sér þar með þátttökurétt í A-úrslitum með einkunnina 8,69. Næst henni komst Hilma Pettersson frá Svíþjóð á Lauki frá Varmalæk með 8,60 í einkunn. Einn annar íslenskur knapi tók þátt í þessum úrslitum en það var Guðmar Hólm Líndal á Arthúri frá Baldurshaga en þeir hlutu 8,41 í einkunn og er hlutskipti þeirra á Norðurlandamóti því 11. sæti í B-flokki ungmenna.
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 8 | Sara Dís Snorradóttir / Nökkvi frá Syðra-Skörðugili | 8,69 |
| 9 | Hilma Pettersson / Laukur frá Varmalæk | 8,60 |
| 10 | Tilde Astrup / Baldi frá Feti | 8,44 |
| 11 | Guðmar Hólm Líndal / Arthúr frá Baldurshaga | 8,41 |
| 12 | Grete Fostervoll Flemmen / Assa frá Margrétarhofi | 8,38 |
| 13 | Felicia Wiström / Sókrates från Sundabakka | 8,32 |
| 14 | Roberta Bøgeblad Larsen / Veigur frá Eystri-Hól | 8,28 |
| 15 | Mina Fidje Hansen / Maríus frá Húsavík | 8,11 |
A-flokkur ungmenna
Í A-flokki ungmenna var það Alma Jonsson á Móa frá Efri-Fitjum sem vann sér þátttökurétt í A-úrslitum með einkunnina 8,32. Önnur varð Rebecca Hesselbjerg Taulborg á Drakúla frá Akurgerði með 8,22. Guðmar Hólm og Leikur náðu sér ekki í A-úrslita sæti.
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 8 | Alma Jonsson / Mói frá Efri-Fitjum | 8,32 |
| 9 | Rebecca Hesselbjerg Taulborg / Drakúla frá Akurgerði | 8,22 |
| 10 | Synne Hårdnes Mjølstad / Mínímý från Ekudden | 8,06 |
| 11 | Lisa Krogvig Bjørnstad / Hugur frá Þúfum | 0,00 |
| 12 | Julie Thorsbye Andersen / Ás frá Strandarhöfði | 7,58 |
| 13 | Elisa Lund Iskov / Rönd frá Selfossi | 7,48 |
| 14 | Guðmar Hólm Líndal / Leikur frá Lækjamóti II | 6,42 |
Unglingaflokkur
Í unglingaflokki var það Andreas Lie Sørensen á Djásn frá Arnbjörgum sem tryggði sér sæti í A-úrslitum með 8,38 en þeir keppa fyrir hönd Noregs.
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 9 | Andreas Lie Sørensen / Djásn frá Arnbjörgum | 8,38 |
| 10 | Ellen Smet Jensen / Ferill frá Búðarhóli | 8,36 |
| 11 | Sille Emilie Søndergaard / Vespa fra Kringlan | 8,31 |
| 12 | Nathalie Røe-Skavnes / Smári frá Steinnesi | 8,28 |
| 13 | Minna Lindberg / Garri från Mörtö | 8,11 |
Sara Dís og Nökkvi mæta til A-úrslita
Endurtók leikinn tíu árum seinna