Norðurlandamót Sara og Herkúles bæta við sig titli

  • 5. ágúst 2026
  • Fréttir
Niðurstöður úr gæðingaskeiði í ungmennaflokki

Það var mjótt á munum í gæðingaskeiðinu í ungmennaflokki en flokkurinn vinnst á aukastöfum.

Sara Garðarsdóttir Hesselman og Herkúles från Knubbo eru Norðurlandameistarar í gæðingaskeiði og bæta við sig enn einum Norðurlandameistaratitlinum en á síðasta móti unnu þau samanlagðar fimmgangsgreinar í unglingaflokki og 100 m. skeiðið. Sara og Herkúles keppa fyrir Svíþjóð

Samlandi hennar og með sömu einkunn, Klara Nydahl og Dagur frá Ketilsstöðum, urðu í öðru sæti og í þriðja varð Filippa Gram og Kristall frá Skagaströnd með 6,50 í einkunn en þau keppa fyrir Danmörku.

Íslendingar áttu einn fulltrúa í greininni, Þórgunni Þórarinsdóttur en hún og Tófa Þorvardóttir från Stall Vitavillan enduðu í fimmta sæti.

Niðurstöður úr gæðingaskeiði í ungmennaflokki
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Sara Gardarsdottir Hesselman Herkúles från Knubbo 6,63
2 Klara Nydahl Dagur frá Ketilsstöðum 6,63
3 Filippa Gram Kristall frá Skagaströnd 6,50
4 Kanerva Niemi Sinfónia fra Kaakkola 6,25
5 Þórgunnur Þórarinsdóttir Tófa Þorvardóttir från Stall Vitavillan 5,96
6 Vilma Marie Ostergaard Glæsir fra Rist 5,71
7 Palma Sandlau Jacobsen Búi frá Húsavík 5,13
8 Vilma Mätäsniemi Hvammur frá Hvolsvelli 4,42
9 Olivia Agerhill Júlía från Agersta 3,42
10 Hermine Oline Gude-Karlsen Silfri frá Mið-Fossum 2,83
11 Maiken Berild Vold Kaspar frá Steinnesi 2,13
12 Rebecca Hesselbjerg Taulborg Tindra fra Kirstineholm 1,92

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link