Sárþjáður af hestadellu
Daníel Jónsson var valinn kynbótaknapi ársins á uppskeruhátíð hestamanna á dögunum annað árið í röð. Árangur hans á kynbótabrautinni var eftirtektarverður, en hann sýndi 70 sýningar á árinu. Daníel var sá eini sem sýndi hest sem hlaut yfir 9 fyrir hæfileika á árinu, Glóðafeyki frá Halakoti, en hann stóð efstur í sínum aldursflokki á Heimsmeistaramótinu í Herning. Hann sýndi efstu 5 og 6 vetra hryssur landsins árið 2015. Frábær árangur! Eið faxi hafði samband við Daníel og ræddi við hann um vinnuna, ræktun, sýningar og lífið sjálft.
„Mér fannst hápunkturinn vera að ríða Glóðafeyki til sigur á HM í Herning og geta endað það á þann hátt sem að við ætluðumst til af honum. Og getað gert þetta fyrir vin minn heitinn, hann Einar Öder, Svönu og fjölskylduna. Mér fannst það algjör toppur“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH