Sauðanes hrossaræktarbú HEÞ
Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga fór fram sl. fimmtudag í Hlíðarbæ í Eyjafirði að er fram kemur á heimasíðu félagsins:
„Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur BÍ flutti erindi. Hann fór vítt og breytt um sviðið í hrossræktinni og fór vel yfir líðandi starfsár í kybótageiranum. Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma hjá MAST flutti ítarlegt erindi um áverka í munni keppnishrossa á. Fyrir utan tölulegar upplýsingar um tíðni áverka á Landsmóti og Íslandsmóti var um að ræða afar fræðandi fyrirlestur um lífeðlisfræðilega uppbyggingu munnsins sem ætla má að allir þeir sem stinga méli upp í hest hefðu gagn af að heyra.
Á fundinum fóru fram verðlaunaveitingar til ræktenda efstu hrossa í hverjum flokki og tilnefningar ræktunarbúa. Efsta kynbótahross (aldursleiðrétt skv. viðmiðun BÍ) var stóðhesturinn Eldur frá Torfunesi en hann hlaut í aðaleinkunn 8,60. Var þetta annað árið í röð sem Eldur hlítur þennan titil. Tilnefnd ræktunarbú vor sex talsins: Efri-Rauðilækur, Komma , Litla-Brekka, Ós, Sauðanes og Sámsstaðir. Hrossaræktarbú HEÞ 2012 er Sauðanes. Á bænum Sauðanesi á Langanesi stundar hrossarækt Ágúst Marinó Ágústsson. Hrossaræktin byggir að hluta á gömlum merg en faðir hans Ágúst Guðröðarson hefur stundað hrossarækt á Sauðanesi í um 40 ár en Ágúst yngri hefur nú að mestu tekið við búskapnum. Einnig hafa verið keyptar hryssur á undanförnum árum sem teknar hafa verið inn í ræktunina. Á búinu fæðast 5-8 folöld árlega og hefur verið leitast við að fylgja þeim vel eftir í tamningum og á sýningum. Á þessu ári voru sýndar tvær hryssur í fullnaðardóm báðar 5 vetra gamlar og var meðaleinkunn þeirra 8,12. Samtökin óska þeim feðgum innlega til hamingju með árangurinn.“
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing