Sebrafolald fær íslenska fósturmóður

  • 15. október 2026
  • Utan úr heimi Fréttir

Sebrafolaldið sem íslensk hryssa hefur tekið að sér að aðstoða við uppeldi í Danmörku. Myndir: Aalborg Zoo

Óvenjulegt fósturhlutverk vekur athygli í Danmörku.

Íslensk hryssa hefur tekið að sér óvenjulegt hlutverk í Danmörku þar sem hún aðstoðar við uppeldi sebrafolalds sem missti móður sína skömmu eftir fæðingu. Hryssan sér ekki um mjólkurgjöfina heldur gegnir mikilvægu hlutverki í félagslegum þroska folaldsins.

Sebrafolaldið fæddist í dýragarðinum Aalborg Zoo í Álaborg. Fæðingin gekk vel en móðirin féll snemma morguninn eftir vegna innvortis blæðinga þegar slagæð í legi hennar rifnaði. Folaldið var hins vegar hraust og hafði náð að drekka vel af broddmjólk móður sinnar. Starfsfólk dýragarðsins náði einnig að mjólka móðurina eftir að hún féll og gefa folaldinu broddmjólkina úr pela.

Sebrafolaldið ásamt móður sinni skömmu eftir köstun. Móðirin féll morguninn eftir.

Íslensk hryssa varð fyrir valinu

Í kjölfarið hófst leit að hryssu sem gæti tekið að sér folaldið. Nokkrir möguleikar komu til greina en íslensk hryssa varð að lokum fyrir valinu.

Samkvæmt upplýsingum sem Susanne Solskov, fjölmiðla- og upplýsingafulltrúi Aalborg Zoo veitti blaðamanni Eiðfaxa réð þar meðal annars hjarðhegðun íslenskra hesta og reynsla eiganda hryssunnar af umönnun móðurlausra folalda.

Hryssan hefur ekki áður gegnt hlutverki fósturmóður en móðir hennar hafði nokkrum sinnum tekið að sér móðurlaus folöld. Að sögn eigandans er hryssan mjög lík móður sinni í skapgerð og var það ein ástæða þess að hún varð fyrir valinu.

Sebrafoaldið var flutt á búgarðinn þar sem íslenska hryssan dvelur. Fyrst var folaldið haft í sér stíu nálægt hryssunni og öðru folaldi, þar sem þau gátu séð hvert annað. Síðan hafa þau smám saman fengið að kynnast betur.

Að sögn Susanne ganga samskiptin vel og hryssan sýnir sebrafolaldinu sífellt meiri áhuga. Þau fá að vera saman í nokkrar klukkustundir í senn en eru síðan aðskilin svo folaldið fái næga hvíld. Ef sebrafolaldið verður of leikglatt eða óstýrilátt setur hryssan því mörk.

Undirbúningur fyrir lífið í sebrahjörð

Sebrafolaldið fær mjólk úr fötu og er ekki gert ráð fyrir að það muni fara á spena hjá hryssunni. Hlutverk hennar snýst fyrst og fremst um félagsskap, uppeldi og að kenna folaldinu samskipti og hegðun innan hjarðar.

ð sögn dýragarðsins er sebrafolaldið enn mjög á varðbergi og hegðun þess frábrugðin hegðun hestfolalda. Það sækist til að mynda ekki eftir snertingu við fólk heldur kemur til að drekka og fer síðan aftur í burtu.

Markmiðið er að folaldið nái nægum styrk og þroska til að geta síðar gengið til liðs við hjörð Grévy-sebrahestanna í dýragarðinum. Hvenær það verður ræðst af heilsu og þroska folaldsins.

Þangað til gegnir íslenska hryssan mikilvægu hlutverki í uppeldi þessa óvenjulega skjólstæðings.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link