Seðjandi kvöld með sagnaþul á laugardaginn
Hótel Holt bíður hestamönnum á seðjandi kvöld með sagnaþul á laugardaginn, 26. febrúar, næst komandi. Skemmtilegt kvöld um helgina, hittumst og fögnum samkomutakmarkalausu lífi.
Þriggja rétta kvöldverður að hætti Holtara með sagnamanni á heimsvísu.
Skemmtilegur viðburður þar sem blandað er saman frábærum mat, einstöku umhverfi og skemmtun.
Guðni Ágústsson heldur utan um kvöldið og skapar frábæra stemningu með sögum og gamanmáli.
Kvöldið hefst klukkan 19:00 með fordrykk.
Verð: 12.900 kr
Bóka borð: [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson