Segist vita af tveimur áminningum
„Mér finnst þetta vera hrein rökleysa, þessi ákvörðun Landssambands hestamannafélaga, og mér skilst að hún verði borin undir dómstól ÍSÍ [Íþrótta- og ólympíusambands Íslands] strax eftir helgi,“ segir Óskar Sæberg, lögfræðingur og talsmaður Konráðs Vals Sveinssonar sem vísað var úr landsliðshóp í gær, í viðtali við Morgunblaðið.
Samkvæmt Óskari mun mál Konráðs verða flutt fyrir dómstól ÍSÍ eftir helgi en Óskar segir brottvísunina vera sorglega og byggjast annars vegar á sögusögnum og hins vegar því að Konráð hafi ekki mætt í réttum buxum á mót og mætt seint á liðsfund. „Ég spyr nefndina hvað Konráð gerði svona slæmt að það réttlæti að nefndin rjúki til og sparki heimsmeistaranum okkar í burtu korteri fyrir Heimsmeistaramót? Mér vitandi hefur Konráð hlotið tvær áminningar fyrir agabrot, aðra fyrir að mæta of seint á liðsfund og hina fyrir að mæta í vitlausum reiðbuxum. Önnur agabrot hafa ekki verið kynnt mér eða Konráði. Við spurðum nefndina ítrekað hvort það tengdist líkamsárásinni sem hann varð fyrir í kjölfar þess að hafa bakkað á bifreið starfsmanna Alendis TV á Reykjavíkurmeistarmóti Fáks í Víðidal 14. Júní,“ segir Óskar og bendir á að engin leið sé að átta sig á raunverulegu ástæðu brottrekstrarins í ákvörðunarbréfinu sem Konráð fékk frá nefndinni.
Viðtal Óskar við Morgunblaðið má lesa HÉR
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH