Sekúndubrot skildu að fljótustu hesta í 100 metra skeiði
Sigursteinn hafði sigur í 100 metra skeiði á Krókusi
Nú strax eftir hádegi fór fram keppni í 100 metra skeiði á Meistaramóti Íslands í gæðingakeppni. Um frábæra skemmtun var að ræða og litlu munaði á fljótustu hestum en einungis eitt sekúndubrot skildi að fyrsta og annað sætið.
Aðstæður til skeiðs eru frábærar hér á Hellu 16°C og hliðarvindur upp á 1,6 m/s að vestan.
Sigursteinn Sumarliðason sem sat Krókus frá Dalbæ átti besta tíma dagsins en hann var 7,45 sekúndur annar varð Konráð Valur Sveinsson á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu II á tímanum 7,46.
100 metra skeið
| Sæti | Keppandi | Hross | Tími |
| 1 | Sigursteinn Sumarliðason | Krókus frá Dalbæ | 7,45 |
| 2 | Konráð Valur Sveinsson | Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II | 7,46 |
| 3 | Árni Björn Pálsson | Óliver frá Hólaborg | 7,51 |
| 4 | Ingibergur Árnason | Sólveig frá Kirkjubæ | 7,52 |
| 5 | Viðar Ingólfsson | Ópall frá Miðási | 7,53 |
| 6 | Jakob Svavar Sigurðsson | Jarl frá Kílhrauni | 7,57 |
| 7 | Sigurbjörn Bárðarson | Vökull frá Tunguhálsi II | 7,70 |
| 8 | Árni Björn Pálsson | Seiður frá Hlíðarbergi | 7,80 |
| 9 | Teitur Árnason | Bandvöttur frá Miklabæ | 7,83 |
| 10 | Finnur Jóhannesson | Tinna Svört frá Glæsibæ | 7,84 |
| 11 | Erlendur Ari Óskarsson | Dama frá Hekluflötum | 7,89 |
| 12 | Kristján Árni Birgisson | Skæruliði frá Djúpadal | 8,01 |
| 13 | Arnhildur Helgadóttir | Skíma frá Syðra-Langholti 4 | 8,40 |
| 14 | Sigurður Baldur Ríkharðsson | Sölvi frá Tjarnarlandi | 8,44 |
| 15 | Árni Björn Pálsson | Nn frá Melbakka | 8,45 |
| 16 | Þórey Þula Helgadóttir | Þótti frá Hvammi I | 8,63 |
| 17 | Þorvaldur Logi Einarsson | Gloría frá Grænumýri | 8,97 |
| 18 | Jón Bjarni Smárason | Blævar frá Rauðalæk | 9,35 |
| 19-22 | Daníel Gunnarsson | Eining frá Einhamri 2 | 0,00 |
| 19-22 | Jósef Gunnar Magnússon | Smekkur frá Högnastöðum | 0,00 |
| 19-22 | Ólafur Örn Þórðarson | Heiða frá Skák | 0,00 |
| 19-22 | Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson | Seyður frá Gýgjarhóli | 0,00 |
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV