Sex hross drápust – MAST bíður niðurstöðu krufningar

  • 5. janúar 2012
  • Fréttir
Sex hross drápust - MAST bíður niðurstöðu krufningar

Sex hross drápust á bænum Eysta-Fróðholti í Landeyjum í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnunn var eitt hrossanna sent til krufningar og er beðið niðurstöðu hennar áður en unnt er ákvarða hvað varð hrossunum að aldurtila. Grunur leikur þó á að um hræeitrun sé að ræða. Fulltrúi Matvælastofnunnar fylgist með málinu og er niðurstöðu krufningar að vænta um eða eftir helgi.

Ársæll Jónsson bóndi á Eystra-Fróðholti baðst undan viðtali þegar haft var samband við hann en sagði að enginn önnur hross hafi sýnt veikindamerki í dag.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link