Síðasta kynbótasýning ársins

  • 10. september 2021
  • Fréttir
Kynbótasýning í Isernhagen í Þýskalandi

Síðustu kynbótasýningu ársins lauk í gær en hún var haldin í Þýskalandi. Dómarar á sýningunni voru John Siiger Hansen og Silke Feuchthofen. Alls komu 34 hross til dóms og þar af 30 í fullnaðardóm, fimm hlutu 8,00 eða hærra í aðaleinkunn og 1. verðlaun.

Hæst dæmdur á sýningunni var sex vetra gamall stóðhestur, Leikur frá Lækjamóti II, en hann hlaut fyrir sköpulag 8,26, fyrir hæfileika 8,23 og í aðaleinkunn 8,24. Hann hlaut m.a. einkunnina 8,5 fyrir tölt, greitt stökk, samstarfsvilja, fegurð í reið og hægt tölt. Ræktendur Leiks eru þau Vigdís Gunnarsdóttir og Ísólfur Líndal Þórisson en eigandi er James Bóas Faulkner. Leikur er undan Konsert frá Hofi og Gátu frá Lækjamóti en faðir Gátu er Trúr frá Auðsholtshjáleigu og móðir hennar er Toppa frá Lækjamóti. Sýnandi var Agnar Snorri Stefánsson en í samtali við Eiðfaxa voru sýnendur fremur óánægðir með vallaraðstæður á sýningarstað. Agnar Snorri sýndi 11 hross á sýningunni, þar af átta í fullnaðardóm. Sigurður Óli Kristinsson, Søren Madsen og Þórður Þorgeirsson sýndi allir fjögur hross hvor.

Öll hross á sýningunni raðað eftir aðaleinkunn

Hross á þessu móti Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn Sýnandi
IS2015155118 Leikur frá Lækjamóti II 8.26 8.23 8.24 Agnar Snorri Stefánsson
IS2014155116 Kjarkur frá Lækjamóti II 8.38 7.92 8.08 Agnar Snorri Stefánsson
DK2015200205 Hnísa fra Haarbygaard 8.21 7.92 8.02 Sigurður Óli Kristinsson
DK2015200535 Fleygiferð fra Bakkeholm 8.09 7.97 8.01 Søren Madsen
DK2016100131 Natan fra Guldbæk 8.41 7.77 8 Sigurður Óli Kristinsson
IS2016186911 Leó frá Feti 8.44 7.66 7.93 Sigurður Óli Kristinsson
DK2014200543 Náttdís fra Stald Klitgaard 7.94 7.85 7.88 Þórður Þorgeirsson
SE2015106890 Þór från Hagstad 7.83 7.87 7.86 Agnar Snorri Stefánsson
DE2016134125 Rasputin von Myraland 7.94 7.79 7.85 Lara Meyer
IS2016255117 Melrós frá Lækjamóti II 8.16 7.65 7.83 Agnar Snorri Stefánsson
IS2015276192 Berglín frá Ketilsstöðum 7.79 7.82 7.81 Søren Madsen
DE2016141485 Þróttur von Horsemate 8.17 7.62 7.81 Þórður Þorgeirsson
DK2016200199 Miska fra Lillelund 8.17 7.61 7.81 Elisabeth Sys Pilegaard
IS2014286658 Gríma frá Flagbjarnarholti 7.81 7.8 7.8 Þórður Þorgeirsson
DK2013200213 Venus fra Ny Nørregård 7.9 7.75 7.8 Agnar Snorri Stefánsson
DK2016100127 Gabríel fra Skovhuset 8.3 7.51 7.79 Søren Madsen
SE2015206870 Gleðja från Övedskloster 7.86 7.69 7.75 Sigurður Óli Kristinsson
DK2015200191 Mánastjarna fra Bendstrup 7.94 7.65 7.75 Søren Madsen
SE2016170589 Skýr från Hagstad 7.88 7.67 7.74 Agnar Snorri Stefánsson
DE2014263575 Fjötra vom Grenzland 7.85 7.57 7.67 Willi Becker
DE2014222723 Árelía von Heidmoor 7.65 7.64 7.64 Sarah Stephen
DK2015200080 Björk fra Rija 7.86 7.5 7.63 Anne Stine Haugen
IS2016255109 Varða frá Lækjamóti 7.57 7.62 7.61 Agnar Snorri Stefánsson
DE2015122585 Snarpur von Godemoor 8.04 7.35 7.59 Þórður Þorgeirsson
DE2012122949 Théodor von Thóradik 7.71 7.52 7.59 Beeke Köpke
DK2010101667 Zazaki fra Nygård 7.77 7.35 7.5 Denise-Melissa Bruns
IS2016286130 Varða frá Ármóti 7.91 7.26 7.49 Willi Becker
DE2014163770 Ársæll von der Igelsburg 8.19 6.91 7.36 Sina Günther
DK2016200235 Eldraun fra Sólvig 7.89 7.02 7.32 Agnar Snorri Stefánsson
IS2014187545 Spegill frá Kvíarhóli 7.91 7 7.32 Heike Korter
DK2014100580 Bárður fra Gavnholt 8.24 Agnar Snorri Stefánsson
IS2014101396 Byr frá Hagahofi 7.79 Joana Bartnick
IS2011258517 Dagný frá Vatnsleysu 7.74 Agnar Snorri Stefánsson
DK2016200438 Táta fra Horskilde 7.96 Agnar Snorri Stefánsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link